Fræðslukvöld um mótahald
verður haldið 31.október 2007 kl. 20:00, í C sal Íþróttamiðstöðinni Laugardal
Farið verður yfir mótahald í fimleikum, undirbúning og skipulag móta, skráningu keppenda og starfsmanna á mót. Fræðslan er ætluð stjórnarfólki og starfsmönnum aðildarfélaga FSÍ sem og öðru áhugafólki um fimleika. Vonast er eftir að sjá sem flesta mótstjórar komandi móta og þeirra starfsfólk.
Það er heilmikil vinna að baki hvers móts. Til að mótin gangi sem best, fyrir fimleikamennina og mótshaldara er mikilvægt að þekkja reglurnar og vinnulagið. Því vill FSÍ hvetja öll félög að senda sína fulltrúa á þessa kynningu hjá Hlín Bjarnadóttur og Hrund Þorgeirsdóttur.
Skráning í FELIX undir NÁMSKEIÐ - FRÆ-mótahald fyrir 27.október (ef ekki næst lágmarksþátttaka verður fræðslukvöldinu frestað/fellt niður).