Fræðslunefnd FSÍ hefur hauststarfið á sérgreinanámskeiði FSÍ 2A nú um helgina, 27. og 28.ágúst 2011. Stór hópur er skráður á námskeiðið, skipaður þátttakendum sem lokið hafa stigi 1 þjálfaramenntunnar og eða með þjálfaramenntun á háskólastigi.
Upplýsingar til þátttakenda:
Krafist er fullra þátttöku í bóklegum og verklegum tímum, klæðnaður er íþróttafatnaður. Mætið með skriffæri, allir fá kennslugögn og möppur.
Laugardagur 27. ágúst:
Bókleg kennsla fer fram í húsnæði ÍSÍ í Laugardal á 2. hæð. Verkleg kennsla í fimleikasal Ármanns Laugarbóli Laugardal.
09:00 – 09:10 Kynning á námskeiðinu og afhending gagna: Hlín
09:15 – 10:40 Þrekþjálfun og fimleikar, bóklegt: Hlín
10:50 – 12:00 Aflfræði í snúningum og sveiflum, bóklegt: Hlín
12:00 – 13:00 Matarhlé
13:00 – 14:30 Teygjur, bóklegt: Guðmundur Þór
15:00 – 16:00 Teygjur, verklegt: Guðmundur Þór og Hlín
Sunnudagur 28. ágúst:
Kennsla fer fram í íÞróttahúsi Gerplu, Versölum 3, Kópavogi.
09:00 – 12:00 Æfingar á dýnu, verklegt: Guðmundur Þór
13:00 - 17:00 Val a) Æfingar á litlu trampólíni, verklegt: Ása Inga og Olga
Val b) Æfingar á tvíslá, svifrá og stökki, verklegt: Guðmundur Þór
17:00 Námskeiðslok
Kennarar:
Ása Inga Þorsteinsdóttir, kennari og fimleikaþjálfari
Guðmundur Þór Brynjólfsson, sjúkraþjálfari og fimleikaþjálfari
Hlín Bjarnadóttir, sjúkraþjálfari og fimleikaþjálfari
Olga Bjarnadóttir, íþróttakennari og fimleikaþjálfari
Fræðslunefnd FSÍ