Heimasíða Fimleikasambands Íslands

       Heimasíða FSÍ: www.fimleikasamband.is var formlega opnuð á formannafundi laugardaginn 20.október. 

Þó skrifað hafi verið inn á síðuna síðan í sumar hefur hún ekki verið auglýst fyrr en nú.  Það er mikið ánægjuefni að Fimleikasambandið sé nú komið með sína eigin síðu.  Þar til nú hefur sambandið haft undirsíðu á fimleikar.is og fréttir birtar þar.  Ber að þakka Jóni Finnboga það samstarf. 

Eins og vill nú oft vera, þá eru enn einhverjir hnökrar á þessari nýju síðu.  Við munum halda áfram að vinna að því að bæta hana eins og frekast er kostur.  Allar ábendingar eru vel þegnar í því sambandi.