Landsliðsverkefni í hópfimleikum 2012

Þann 26. nóvember næstkomandi fer fram opin æfing fyrir þá sem gefa kost á sér í landsliðsverkefni hópfimleika á vegum Fimleikasambandsins árið 2012. 

 
Félögum hafa verið sendar út þær kröfur sem iðkandi þarf að uppfylla til þess að mæta á æfinguna.  
 
Nú má finna gólfæfingarnar (stutt dansrútína) á heimasíðu sambandsins www.fimleikasamband.is undir Landslið í hópfimleikum-opin æfing. Þar er einnig að finna tengil með tónlistinni fyrir æfingarnar.
 
Vinsamlega athugið að fimleikafólkið þarf að sýna þær æfingar sem áður voru uppgefnar gildar, þrátt fyrir að sýnendur á myndbrotunum geri það ekki.
 
Í næstu viku verður boðið upp á æfingu fyrir þjálfara þar sem þeir geta komið og farið í gegnum æfingarnar með talningu.
  
Skráningablaðið skal senda til fsi@isisport.is fyrir 21.nóvember. Þar þarf að koma fram hvaða stökk iðkandinn hyggst framkvæma á æfingunni.
 
Æfingin hefst kl. 12:00 í Ásgarði í Garðabæ. Tímaplan er háð fjölda skráninga.
 
FSÍ stefnir að þátttöku á Evrópumótið 2012 með eftirtalin landslið:


Mix junior 13-17 ára
Konur junior 13-17 ára
Karlar junior 13-17 ára
Mix senior
Konur senior (félagslið)