Fimleikafélagið Björk - YFIRÞJÁLFARI!
Óskum eftir að ráða yfirþjálfara fyrir grunnhópa í fimleikadeild. Starfið felur í sér yfirumsjón með þjálfun í grunnhópum félagsins, röðun í hópa, samskipti við foreldra, o.fl. Umsækjendur þurfa að hafa menntun í íþróttafræðum eða reynslu af þjálfun. Skipulagshæfileikar og lipurð í samskiptum eru mikilvægir eiginleikar í starfi. Um er að ræða 50% starf, seinni part dags. Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Laun, samkomulagsatriði. Fyrirspurnir og umsóknir um starfið sendist í síðasta lagi 20. des. á fbjork@fbjork.is.
Fimleikafélagið Björk í Hafnarfirði, sem er 60 ára á þessu ári, er fjölgreinafélag með um 800 iðkendur í fjórum deildum, þar af eru um 430 iðkendur í fimleikadeild. www.fbjork.is.