Fyrsta skráning á EUROGYM þarf að berast skrifstofu FSI fyrir 1.nóvember nk. Þar þarf að koma fram fjöldi barna/sýnenda og fjöldi þjálfara og fylgdarmanna. Fyrir hvern þarf jafnaframt að greiða 10.000kr óendurkræft staðfestingargjald. Þar sem Albi getur bara tekið við ákveðið mörgum gestum og útlit er fyrir skráningu fleiri en þeir geta annað, er mikilvægt að skrá strax í upphafi alla sem hyggja á þátttöku. Allt stefnir í að ekki verði hægt að bæta við skráningu eftir að fyrsta skráning er send út.
Í lok september fengu félög kynningu sem hægt er að nota á foreldrafundum. Vonandi hafa allir áhugasamir haldið fund og eru tilbúinir með fjölda og greiðslu. Um leið og skýrist hve margir ætla frá Íslandi er hægt að ganga í að bóka flug og þá að finna út væntanlegt verð. Nú lítur út fyrir að þetta kosti u.þ.b. 95.000kr á mann, með flugi, ferðum, fæði, búningum, tryggingu og þátttökugjöldum.
Fyrir 1.nóvember 2007:
Vinsamlega greiðið inn á reikning Fimleikasambandsins, 10,000kr x fjöldi:
Reiknisnúmer: 313-13-3700 kt. 540169-2849;
setjið í skýringu: EUROGYM - nafn félags, sendið kvittun í tölvupósti á fsi@isisport.is.
Sendið jafnframt tölvupóst á fsi@isisport.is merkt EUROGYM-skráning þar sem fram kemur:
Nafn félags,
nafn tengiliðs ásamt símanúmeri og netfangi,
fjöldi sýnenda, þjálfara og fylgdarmanna.