Uppskeruhátíð FSÍ 2011

Fimleikasambandið hélt uppskeruhátíð sína 2011 í boði Arion banka fyrr í dag.  Þar voru ýmsar viðurkenningar veittar og fimleikafólk heiðrað.

Gullmerki hlaut Sandra Dögg Árnadóttir.

 

Sandra Dögg Árnadóttir hefur starfað í tækninefnd kvenna í áhaldafimleikum frá 1995, með hléum, og lungað af tímanum sem formaður nefndarinnar. Hún hefur tekið þátt í gerð íslenska Fimleikastigans, kennt á dómaranámskeiðum FSÍ , sérgreinanámskeiðum FSÍ og starfað í fræðslunefnd FSÍ frá 2008. Hún hefur komið að landsliðsverkefnum FSÍ í ýmsum hlutverkum. 
 
Hún er alþjóðlegur dómari (frá 1997) og er ein þriggja íslenskra kvendómara sem hafa dæmt Heimsmeistaramót í greininni. 
 
Sandra Dögg hefur unnið mikið og óeigingjarnt starf, er ávallt boðin og búin að veita faglega ráðgjöf og stuðning og umfram allt verið jákvæð, sanngjörn og drífandi með hag fimleikanna að leiðar ljósi í sínum störfum.