Uppskeruhátíð FSÍ 2011

Á uppskeruhátíðinni 28.desember 2011 voru ýmsar viðurkenningar veittar.

 

 Stjarnan-Ármann mix  fyrir brons á Norðurlandamóti félagsliða í hópfimleikum.

 

Keppni blandaðra liða, kvenna og karla, er tiltölulega nýtilkomin hér á landi þó keppt hafi verið í blönduðum (mix) flokkum erlendis til fjölda ára. Fyrir Norðurlandamót félagsliða sameinuðust tvö félagslið, Ármann og Stjarnan, í eitt og kepptu í blönduðum flokki. Liðið lenti þar í 3. sæti af sex liðum sem tóku þátt og hlutu 47.216 stig.

 

 

Ágústa Dan Árnadóttir
Hjördís Jóhannsdóttir
Hulda Magnúsdóttir
Katrín Pétursdóttir
Solveig Ásta Bergsdottir
Þórdís Ólafsdóttir
Sjöfn Guðmundsdóttir
Stefán Pàlsson
Daði Snær Pálsson
Ívar Már Sigurpálsson
Peter Larsson
Rúnar Bogi Gíslason
Thomas Friis Jørgensen
Agnar Burgess
Paul Lars-Niclaes Jerkeholt, þjálfari
Carolina Sturk, þjálfari
Alice Flodin, þjálfari
 

 

NORÐURLANDAMÓT UNGLINGA 2011, áhaldafimleikar, haldið á Íslandi í apríl:
Freyja Húnfjörð Jósepsdóttir fyrir silfur á stökki á NMJ, 5.sæti í fjölþraut og komst í úrslit á öllum áhöldum
Þórey Kristinsdóttir fyrir silfur í gólfæfingum á NMJ
 
Unglingalandslið Íslands í kvennaflokki náði 3. sæti í liðakeppni á Norðurlandamóti unglinga haldið á Íslandi mánaðamótin apríl-maí. Liðið skipaði:
Freyja Húnfjörð Jósepsdóttir
Hildur Ólafsdóttir
Norma Dögg Róbertsdóttir
Sigríður Hrönn Bergþórsdóttir
Þórey Kristinsdóttir
 
NORÐUR EVRÓPUMÓT 2011, áhaldafimleikar:
Hildur Ólafsdóttir  fyrir brons í gólfæfingum á NEM
Róbert Kristmannsson   fyrir brons á bogahesti á NEM
 
Íslenska kvennaliðið náði þeim glæsilega árangri að vera í 3.sæti á Norður Evrópumóti haldið í Uppsala í nóvember en þetta er í annað skipti sem kvennalið Íslands kemst á verðlaunapall á þessu 10 landa vinamóti Norðurlandanna og fjögurra þjóða á Bretlandseyjum.  Liðið skipaði:
Agnes Suto
Thelma Rut Hermannsdóttir
Dominiqua Alma Belányi
Freyja Húnfjörð Jósepsdóttir
Hildur Ólafsdóttir

 

Alþjóðlega fimleikasambandið, FIG útnefndi Berglindi Pétursdóttur og Björn M. Tómasson sem eftirlitsdómara á Heimsmeistaramótið sem haldið var í Tokyo í október. Boð FIG er mikill heiður fyrir fimleikahreyfinguna á Íslandi og viðkomandi dómara.   Þá hefur Birni einnig verið boðin sama staða á öðru úrtökumóti FIG fyrir Ólympíuleikana 2012.  Berglind og Björn hafa dæmt fyrir Fimleikasamband Íslands hér heima og erlendis til fjölda ára og eru mikilsmetin meðal alþjóðlegra dómara.  Berglindi og Birni voru þökkuð störf sín.