Ályktun frá Fimleikaþingi

Ályktun samþykkt á Fimleikaþingi FSÍ 18.02.2012

 
"Fimleikaþing FSÍ skorar á stjórn ÍSÍ að endurskoða aðkomu sína að kjöri íþróttafréttamanna á Íþróttamanni ársins. 
Samtökum íþróttafréttamanna er að sjálfsögðu frjálst að velja íþróttamann ársins á sínum forsendum. Raunin er hinsvegar sú að almenningur telur með réttu að ÍSÍ hafi beina aðkomu að kjöri íþróttafréttamanna á íþróttamanni ársins hverju sinni, enda eru bæði merki ÍSÍ og styrktaraðila þess mjög áberandi á hátíðinni þar sem viðurkenningin hefur verið veitt.  Vandinn við núverandi fyrirkomulag á vali á íþróttamanni ársins er fyrst og fremst sá að mjög þröngur hópur einstaklinga ræður valinu. Mikilvægt er að auka fjölda þeirra sem hafa atkvæðisrétti í vali á íþróttamanni ársins þar sem ÍSÍ leggur nafn sitt við kjörið. Þannig aukast líkur á að valiið endurspegli skoðanir íþróttahreyfingarinnar.
 
Sérsambönd innan raða ÍSÍ kjósa almennt bæði íþróttamann og íþróttakonu sem skarað hafa framúr á umliðnu ári hverju sinni.  Það gerir ÍSÍ hins vegar ekki sjálft.  Lagt er til að ÍSÍ endurskoði aðkomu sína að kjór á íþróttamanni ársins, hvort sem það er gert í samvinnu við Samtök íþróttafréttamanna eða ekki.“