Mótafyrirkomulag keppnistímabilið 2010-2011 frá Tækninefnd hópfimleika
Opið mót til styrktar landsliðsfólki Íslands í fimleikum, verður haldið sunnudaginn 29.ágúst á Glannavelli. Nánari upplýsingar á netinu: http://golf.is/
Helgina 28.-29. ágúst n.k. verður þjálfaranámskeið 1C haldið á Akureyri.
Námskeiðið er ætlað þeim sem lokið hafa sérgreinahluta FSÍ 1A.
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Afrekskvennasjóð Íslandsbanka og ÍSÍ. Umsóknarfrestur um styrki úr sjóðnum vegna septemberúthlutunar rennur út föstudaginn 17. september n.k.
Nánari upplýsingar um sjóðinn og úthlutunarreglur er að finna hér.
Hægt er að senda umsóknir til ÍSÍ merktar Afrekskvennasjóði Íslandsbanka og ÍSÍ eða á netfangið orvar@isi.is
Sambandsdómaranámskeið verður haldið í húsnæði ÍSÍ, Engjavegi 6, 104 Reykjavík. dagana frá og með 3. sept. til og með 5. sept. 2010. Námskeið í almennum dómarareglum og sérreglum Íslenska fimleikastigas verður haldið dagana 3. og 4. sept. Próf úr námskeiðsefni verða svo haldin þann 5. sept. Nánari dagskrá námskeiðsins verður gefin út síðar. Einstaklingar fæddir ´94 eða fyrr geta skráð sig til þátttöku.
Á Ólympíuleikum ungmenna sem fram fara í Singapore þessa dagana dæmir einn Íslendingur fimleikakeppni karla. Anton Þórólfsson var fyrr á þessu ári valinn af Alþjóðlega Fimleikasambandinu (FIG) til að dæma fimleikakeppnina á Ólympíuleika ungmenna. Anton er í boði Alþjóðasambandsins á meðan á leikunum stendur. Það er mikill heiður fyrir íslenskt fimleikafólk að eiga dómara á svo stóru móti.
Hægt er að fylgjast með keppninni á http://www.youtholympicgames.org/
Fimleikadeild Völsungs á Húsavík óskar eftir að ráða fimleikaþjálfara til starfa veturinn 2010-2011.
Þarf að geta hafið störf sem allra fyrst.
Frekari upplýsingar veitir Milla í síma: 897-3220.
Stjórn fimleikadeildar Völsungs
Kæru dómarar, þjálfarar og stjórnendur aðildafélaga FSÍ