Hollandsmeistari á slá í stúlknaflokki - Eyþóra Þórsdóttir

Í Poortugaal í Hollandi býr ung íslensk stúlka Eyþóra Þórsdóttir, 11 ára. Nú á sunnudaginn varð hún Hollandsmeistari í stúlknaflokki (f.1997-1998) á slá með 12,300. Heldur betur frábær árangur það.

Eyþóru hefur gengið mjög vel í fimleikum og hefur verið boðið að koma í landsliðstest í ágúst til að reyna að komast í hollenska unglinga landsliðið. Þá þarf hún reyndar að hafa hollenskan ríkisborgararétt sem hún hefur ekki enn.

Eyþóra æfir Topsport hjá Pro Patria í Zoetermeer hjá einum virtasta fimleikaþjálfara Hollendinga, Frank Louter, 6 daga í viku samtals 28,5 tíma, frí á laugardögum. Þar er æft tvisvar á dag 3 morgna, 07:30-10:00. Síðan er skóli og aftur æfing seinni partinn 15:30-19:00. Þetta breytist síðan í haust en þá fer æfingatíminn í 33,5 tíma á viku, við bætast 2 morgnar. Til Zoetermeer frá Poortugaal (þorp í Hollandi) þar sem hún býr er u.þ.b. 40 mínútna akstur. Sumarfríið í skólanum eru 6 vikur en 3 vikur í fimleikum.

Í Eredivisie (flokkinum sem Eyþóra keppir í) eru 3 forkeppnir: undanúrslit og síðan tveggja daga úrslitakeppni: fjölþraut og úrslit á áhöldum.

Alþjóðleg íþróttasálfræðiráðstefna um afreksíþróttir.

 

Þann 30. júní munu níu af fremstu íþróttasálfræðingum Evrópu koma til landsins og halda ráðstefnu um íþróttasálfræði og afreksíþróttir í samstarfi við ÍSÍ og Háskólann í Reykjavík. Einkunnarorð ráðstefnunnar er hagnýting.  Þátttakendur munu læra hagnýta hluti til að auka færni sína í aðkomu að afreksíþróttamönnum. Efni ráðstefnunnar er mjög fjölbreytt og leitast er við að það eigi erindi við alla þá sem koma að afreksíþróttastarfi svo sem þjálfara,

Alþjólegi Ólympídagurinn er í dag.

Alþjóðlegi Ólympíudagurinn verður haldinn hátíðlegur um allan heim þann 23. júní. Þennan dag árið 1894 var Alþjóðaólympíunefndin stofnuð.

 

Þetta er því sérstakur dagur í sögu íþrótta og er markmiðið að bjóða fólki að koma saman, hreyfa sig, læra nýjar íþróttagreinar og kynnast ólympískum hugsjónum og gildum. Ólympísku gildin eru; að ávallt gera sitt besta, sýna vináttu og virðingu.

 

EUROGYM-sýning

Hóparnir sem eru á leið til Odense í júlí ætla að taka eina undirbúningsæfingu saman nú 24.júní í Versölum, Kópavogi.  Þar fá félögin tækifæri til að keyra sína 10 mínútna sýningu sem þau ætla að sýna á torgum Odense. 

Sýningin hefst kl. 19:15 og lýkur um kl. 20:30

Þátttaka í mótum FSÍ 2009-2010

Í lok keppnistímabils er ekki úr vegi að fara yfir þátttöku á FSÍ mótum vetrarins.  Alls voru 3485 keppendur skráðir á mót 2009-2010.  Þar af voru 62% skráðir á hópfimleikamót, 28% á áhaldafimleikamót og 10% á mót í almennum fimleikum.  

60% keppenda kepptu fyrir félög af Höfuðborgarsvæðinu og 40% fyrir félög utan hennar.  23% keppenda keppa fyrir Kópavog, 15% fyrir Selfoss, 16% fyrir Reykjavík.

Þjálfarar óskast

Fimleikadeild Keflavíkur óskar eftir þjálfurum, hópfimleikaþjálfara og þjálfara til að hafa yfirumsjón með drengjafimleikum.   Deildin er í örum vexti með frábæra aðstöðu.  Okkur langar mikið til að sinna drengjum betur en þurfum einhvern góðan til að koma okkur af stað.

Áhugasamir hafi samband í netfangið maria@keflavik.is

Fimleikakveðja frá Keflavík

Fjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun

Sumarfjarnám 1. stigs almenns hluta þjálfaramenntunar ÍSÍ hefst 28. júní nk. Námið tekur 8 vikur og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar.
Námið jafngildir íþróttafræði 1024 í framhaldsskólakerfinu og er metið sem slíkt.
Fjarnámið er öllum opið 16 ára og eldri sem áhuga hafa. Nemendur skila verkefni í hverri viku auk lokaverkefnis og krossaprófa.

Mótaskrá 2010-2011 - drög

FSÍ hefur sent frá sér mótaskrá 2010-2011

 

Mikilvægi sjálfboðaliða

Í maí útgáfu University Sports magazine, má finna góða grein um mikilvægi sjálfboðaliða í störfum íþróttahreyfingarinnar og þá aðalega við undirbúning stórviðburða.  Flesta þættina má yfirfæra á sjálfboðastarf félaga og deilda óháð stærð.  Alltaf er mikilvægt að finna sjálboðaliðum störf við hæfi.  Ábyrgðin er mismunandi eftir störfum en öll eru þau jafn mikilvæg.  Greinin er á ensku og frönsku og má nálgast á heimasíðu International University Sport Federation FISU. Enska greinin fylgir hér á eftir.

Fimleikar eru fyrir alla.

 

Nefnd um fimleika fyrir alla, FFA hefur ákveðið að halda sýningarkeppni í hópatriðum í lok nóvember næsta haust. Fyrirmyndin af þessu keppnisformi er Gym for live sem Alþjóðafimleikasambandið hélt í fyrsta skiptið í Dornbirn Austurríki í fyrra sumar. Sú keppni er haldin 4 hvert ár og verður næst í Cape Town Suður- Afríku 2013.
 
Syndicate content