Fyrsta skráning á EUROGYM þarf að berast skrifstofu FSI fyrir 1.nóvember nk. Þar þarf að koma fram fjöldi barna/sýnenda og fjöldi þjálfara og fylgdarmanna. Fyrir hvern þarf jafnaframt að greiða 10.000kr óendurkræft staðfestingargjald. Þar sem Albi getur bara tekið við ákveðið mörgum gestum og útlit er fyrir skráningu fleiri en þeir geta annað, er mikilvægt að skrá strax í upphafi alla sem hyggja á þátttöku. Allt stefnir í að ekki verði hægt að bæta við skráningu eftir að fyrsta skráning er send út.
Heimasíða FSÍ: www.fimleikasamband.is var formlega opnuð á formannafundi laugardaginn 20.október.
Þó skrifað hafi verið inn á síðuna síðan í sumar hefur hún ekki verið auglýst fyrr en nú. Það er mikið ánægjuefni að Fimleikasambandið sé nú komið með sína eigin síðu. Þar til nú hefur sambandið haft undirsíðu á fimleikar.is og fréttir birtar þar. Ber að þakka Jóni Finnboga það samstarf.
Ráðstefna á vegum tækninefndar í hópfimleikum föstudaginn 19.okt. 2007
Berglindi Pétursdóttur hefur verið boðið að vera A1 dómari á Evrópumótinu 2008. Mótið verður haldið í Frakklandi í Clermont-Ferrand 3.-6 apríl 2008. A1 dómarar eru valdir inn á mótið af Evrópusambandinu og er þetta mikill heiður fyrir Berglindi og Ísland að eiga svo virta dómara á alþjóða vísu.
Formannafundur Fimleikasambands Íslands 20.október 2007
Fræðslukvöld um mótahald
verður haldið 31.október 2007 kl. 20:00, í C sal Íþróttamiðstöðinni Laugardal
Farið verður yfir mótahald í fimleikum, undirbúning og skipulag móta, skráningu keppenda og starfsmanna á mót. Fræðslan er ætluð stjórnarfólki og starfsmönnum aðildarfélaga FSÍ sem og öðru áhugafólki um fimleika. Vonast er eftir að sjá sem flesta mótstjórar komandi móta og þeirra starfsfólk.
15 manna hópur Fimleikasambandsins fór út til Dublinar 4.október til að taka þátt í norður Evrópumótinu í áhaldafimleikum. Keppendur karla voru: Rúnar, Róbert, Viktor, Ingvar og Ólafur. Þjálfari þeirra Heimir Jón og dómari Anton Heiðar. Kvenna keppendurnir voru Thelma Rut, Dóra Sigurbjörg, Harpa Dögg, Þórdís Helga og Sigrún Dís. Þeirra þjálfari var Berglind Péturs og Sandra Árna dómari. Fararstjóri var stjórnarmaður í FSÍ Valgeir Jónasson.
FSÍ voru að berast ánægjulegar fréttir frá Þýskalandi þar sem Hlín Bjarnadóttir, þjálfari í Gerplu, alþjóðlegur dómari og tækninefndarkona var að ljúka FIG þjálfaranámskeiði með stæl. Hún sat 10 daga námskeið 3.stigs FIG þjálfaragráðunnar (FIG Coaching Brevet). Þétt dagskrá meðal fremstu þjálfara Evrópu. Hlín gerði sér lítið fyrir og náði 92 stigum, varð önnur hæst á náskeiðinu. Hún er svo sem vön þessu en við vorum kannski að reikna með að hún tæki því rólegra núna, þar sem hún var með Bjarna litla með sér.

Í dag barst boð frá Alþjóðlega fimleikasambandinu, FIG þar sem Berglindi Pétursdóttur og Birni M. Tómasssyni var boðið að vera óháðir dómarar á Good Luck Beijing - 2007 Artistic Gymnastics International Invitational Tournament, sem haldið verður í Beijing, China 28. nóvember 28 til 3.desember nk.
Hlín Bjarnadóttir, þjálfar í Gerplu, er nú þessa dagana á FIG þjálfaranámskeiði. Hlín er þar meðal fremstu þjálfara Evrópu að taka 3 stig FIG þjálfaragráðunnar (FIG Coaching Brevet). Þetta er heilmikið námskeið, þétt dagskrá í 10 daga með fremstu kennurum greinarinnar.