Vantar þjálfara.

Fimleikadeild Fjölnis óskar eftir þjálfurum frá og með næsta hausti. Deildin leitar að þjálfurum bæði fyrir áhalda og hópfimleika. Í boði eru samkeppnishæf laun og önnur fríðindi. Fimleikadeildin hefur verið í örum vexti og hefur fengið nýtt og betra húsnæði í Egilshöll.
Nánari upplýsingar um þessi störf veitir Halla Karí í síma 661 6520. Áhugasamir eru hvattir til að senda umsókn með ferilskrá á netfangið fimleikadeild.fjolnir@gmail.com

Ólympíuleikar 2012 - grein frá heimasíðu FIG

Games of the XXX Olympiad
London (GBR), July 27 – August 12, 2012

Olympic qualifications

LAUSANNE (SUI), FIG Office, May 28, 2010: The FIG recently approved a second qualifying event for the Olympic Games. Artistic, Rhythmic and Trampoline gymnasts will get a chance to qualify as usual, at a world championship event the year preceding the Olympic Games, which in this case means Tokyo (JPN), Montpellier (FRA) and Birmingham (GBR), as well as at the Olympic test events from January 10 – 18, 2012.

Úrvalshópur - hópfimleikar

 

Evrópumótið í hópfimleikum 2010 fer fram í Malmö 19.-24. október.
Heimasíða mótsins er www.teamgym2010.se
Ísland stefnir með 4 lið á mótið:
Landslið Íslands í unglingaflokki
og í fullorðins flokki, tvö kvennalið og eitt karlalið.
 

 

Fimleikadagar á Djúpavogi

Mynd tekin af vef DjúpavogsUm síðustu helgi voru haldnir fimleikadagar í íþróttamiðstöðinni Djúpavogi.  4 dagar af lífi of fjöri undir stjórn Önnu Gretu og Báru Óladóttur.  Á heimasíðu Djúpavogskaupstaðar má skoða skemmtilegt myndband.

Landsliðsæfing EM hóp-junior 2010

Íslandsmót í hópfimleikum í sjónvarpinu

Upptaka frá úrslitum Íslandsmótsins í hópfimleikum, sem fram fór laugardaginn 24.apríl, verður sýnd í Sjónvarpinu á morgun laugardag 8.maí kl 15:35.  Milli umferða á mótinu voru skemmtileg sýningaratriði.

Evrópumót kvenna - Birmingham

Evrópumóti kvenna í áhaldafimleikum er lokið.  Evrópumeistarar eru lið Rússlands með 168.325 stig, silfrinu náðu rúmensku stúlkurnar  eftir harða keppni við heimamenn. Rúmenar með166.800 stig og Bretar 165.300 stig.

Á mótinu lenti lið Íslands í 23.sæti og vann liðið Norðmenn og Dani en Finnar voru eina Norðurlandaþjóðin sem var hærri en íslenska liðið og því sama röð og á Norðurlandamótinu fyrr í mánuðinum.
Thelma Rut Hermannsdóttir náði bestum árangri íslensku stúlknanna  í fjölþraut og sú eina sem keppti á öllum áhöldum. Dóra Sigurbjörg Guðmundsdóttir átti gott mót, (keppti á þremur áhöldum), Tinna Óðinsdóttir keppti á tveimur áhöldum, Dominiqua Belany keppti einnig á tveimur áhöldum og þá keppti Birta Sól Guðbrandsdóttir einungis á tvíslá.

Evrópumót kvenna Birmingham- unglingar

Keppni í fjölþraut í unglingaflokki fór fram í gær.  Mjög skemmtileg keppni þar sem lið Rússa bar höfuð og herðar yfir aðra keppendur.  Lið Rúmeníu náði öðru sætinu og Ítalía vann frakka með 0.100 stiga mun.

Íslensku stúlkurnar, Jóhanna Rakel, Norma Dögg, Hildur og Ásdís Ósk áttu einnig góðan dag, samkvæmt samtali við Hlín Bjarnadóttur í morgun. Þær kepptu í sama riðli og rússarnir og komu á eftir þeim á áhöldin.  Okkar stelpur sýndu frábærar æfingar á stökki, slá og gólfi þarf sem þær bættu sig allar frá Íslandsmóti.  Af 24 liðum voru þær í 18.sæti á stökki, 24.á tvíslá, 15.sæti á slá og 17.á gólfi. 

Evrópumót kvenna - fréttir frá fararstjóra

Syndicate content