13 manna hópur frá Íslandi er staddur í Birmingham í Bretlandi til að taka þátt í Evrópumóti kvenna í áhaldafimleikum sem hefst 28.apríl. Ísland sendir fullt lið seniora: Birta Guðbrandsdóttir, Dóra S. GUðmundsdóttir, Dominiqua Belánýi, Thelma Rut Hermansdóttir, Tinna Óðinsdóttir . Þjálfari þeirra í ferðinni er GUðmundur Þór Brynjólfsson. Lið unglinga (junior) skipa: Ásdís Ósk Ástvaldsdóttir, Hildur Ólafsdóttir, Norma Dögg Róbertsdóttir og Jóhanna R.
Nú hafa íslensku keppendurnir lokið keppni á Evrópumótinu í áhaldafimleikum sem fram fer í Birmingham í Bretlandi. Keppni er ekki lokið og ekki ljóst hvar í röðinni þeir lenda en hægt er að bera saman einkunir þeirra hér miðað við eldri mót. Viktor keppti ekki vegna meiðsla í baki.
Jón Sigurður átti greinilega góðan dag á Evrópumótinu í Birmingham. Hann náði 69,725 stigum, sem er talsvert betra en hann fékk á Íslandsmótinu nú í mars (68,550). Fimleiksambandið óskar Jóni Sigurði til haminju með árangurinn.
Enn eru ekki komin úrslit inn á heimasíðu mótsins en hægt er að fylgjast með fréttum á síðu Evrópusambandsins.
Íslenska landslið karla er halda átti til London og áfram til Birmingham síðasta föstudag, komst ekki vegna flugbanns en náðu að fljúga til Glasgow mánudagsmorgun. Liðið er skipað þeim Viktori Kristmannssyni, Róberti Kristmannssyni og Ólafi Garðari Gunnarssyni. Einn íslenskur keppandi er í junior-keppninni: Jón Sigurður Gunnarsson. Þjálfarar þeirra eru Gennadyi og Axel Bragason, fararstjóri er Davíð Ingason.
Vegna þess hve seint þeir komu til Bretlands misstu þeir af einhverjum æfingum en vonandi kemur það ekki að sök.
ÍSÍ og Íþróttafræðasetur HÍ halda sameiginlega ráðstefnu um íþróttaþjálfara föstudaginn 30. apríl nk. í E-sal Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal frá kl. 13.00 – 16.10. Erlendir og íslenskir aðilar munu fjalla um íþróttaþjálfara í víðu samhengi og velta upp fjömörgum atriðum sem máli skipta í tengslum við hið ágæta starf íþróttaþjálfarans. Hér fyrir neðan er dagskrá ráðstefnunnar.
Síðara Íslandsmótið í hópfimleikum fer fram 23. - 24. apríl n.k. í Stjörnunni.
Í undanúrslitum föstudaginn 23. apríl keppa:
Gerpla mfl., Gerpla 1.fl., Selfoss mfl., Selfoss 1.fl., Stjarnan mfl og Stjarnan 1.fl. í kvenna flokki og í karlaflokki keppir lið Gerplu.
Frá því í gær hafa hóparnir tveir frá Selfossi og Gerplu beðið eftir flugi til Helsinki til að taka þátt í Norðurlandamótinu í hópfimleikum.
Í gær var sú ákvörðun tekin, í samráði við þjálfarar og fararstjóra, að ef ekki yrði flogið fyrir kl. 15:00 í dag, yrði hætti við ferðina. Nú er ljóst að Helsinki flugvöllur er lokaður a.m.k. til kl. 15:00 laugardag.
fer fram í Jyväskylän í Finnlandi laugardaginn 17. apríl.
Frá Íslandi eru lið Gerplu og Selfoss skráð til keppni. En vegna eldgossins var flugi þeirra aflýst í dag og munu þau reyna aftur í fyrramálið. Við vonum að vindáttin breytist svo þau komist á áfangastað.
Sýnt verður frá mótinu á sænska Web-TV:
http://www.gymnastik.se/ hægra megin á síðunni Gymnastic TV
Mílanó meistaramót í áhaldafimleikum verður haldið 16. - 17.apríl 2010, í íþróttamiðstöðinni Björk, Hafnarfirði.
Sjá úrslit undir "úrslit móta" hér vinstra megin á síðunni.
1. hluti – föstudaginn 16. apríl
Keppni í karla-, pilta- og drengjaflokki