Gerpill Ármannsson er skemmtilegt verkefni áhugamanna um fimleika- íþróttina og hefur það markmið að skapa fjör og stemmningu í kringum íslenska fimleika. Gerpill notast við netmiðla, sbr. facebook, youtube og annað til að koma skemmtilegu efni á framfæir. Í augnablikinu er búið að gera prófíl af Gerpli Ármannssyni á Facebook og hvetjum við alla til að gerast vinir Gerpils og styðja þetta verkefni. Hér er linkur á síðu Gerpills www.facebook.com/gerpill
Frábært Íslandsmeistaramót fór fram nú um helgina við glæsilegar aðstæður í Laugabóli, fimleikahöll Ármanns. Á laugardeginum var keppt í fjölþraut og þar gátu einnig fimm hæstu einstaklingarnir á hverju áhaldi tryggt sér sæti í úrslitum á einstökum áhöldum sem fóru síðan fram á sunnudeginum.
Íslandsmeistaramót í fjölþraut í áhaldafimleikum fór fram í dag. Thelma Rut Hermannsdóttir, Gerplu og Viktor Kristmannsson, Gerplu hömpuðu titlunum Íslandsmeistarar 2010. Íslandsmeistarar unglinga urðu Norma Dögg Róbertsdóttir, Gerplu og Sindri Steinn Davíðsson Diego, Ármanni. Á morgun fer fram úrslit á áhöldum, sjá tímasetningu hér annars staðar á síðunni.
Fyrirkomulag mótsins
skv. reglum FIG alþjóðafimleikasambandsins, þ.e. hver hlýtur flest stig samanlagt á öllum áhöldum. Þeir keppendur sem vilja reyna að komast í úrslitakeppni á stökki, framkvæma tvö ólík stökk og meðaltalseinkunn gildir í úrslit. Fyrra stökkið gildir til einkunna í fjölþraut.
Sporttv.is verður með beina útsendingu á netinu frá úrslitum á áhöldum á sunnudaginn 28.mars. Hefst útsending kl. 13:00. Þeir sem ekki eiga tök á að koma í Laugardalinn eru hvattir til að fylgjast með okkar besta áhaldafólki á netinu: www.sporttv.is
Foreldrafélag og íþróttafélagið Neisti á Djúpavogi hefur ákveðið að hefja fimleikastarf. Félagið er hinsvegar mjög fátækt af áhöldum, tækjum og tólum til iðkunar og auglýsir því eftir ódýrum eða gefins áhöldum. Allt er vel þegið.
Íslandsmót í áhaldafimleikum 2010
H.Þ.heildverslun, umboðsaðili Milano fimleikabúninga og styrktaraðili Fimleikasambandsins, hefur opnað nýja og uppfærða heimasíðu: www.fimleikavorur.is.
OPNUNARTILBOÐ !!
Í tilefni af opnun nýju vefsíðunar verður TAX FREE af öllum fimleikabolum sem til eru á lager hjá okkur. Athugið þetta tilboð gildir einungis fyrir þá boli sem pantaðir eru í gegnum vefverslun.
Fimleikadeild Keflavíkur óskar eftir áhaldafimleikaþjálfara kvenna. Deildin er ört vaxandi, með um 400 iðkendur. Stúlkurnar sem eru lengst komnar í deildinni keppa í 1. og 2. þrepi á næsta keppnistímabili. Einnig getur deildin státað sig af því að vera í nýju fimleikahúsnæði sem er mjög vel búið. Áhugasamir hafi samband í netfangið maria@keflavik.is
Bikarmótið í hópfimleikum fór nú fram íþróttahúsi Stjörnunnar við Ásgarð. Á mótinu kepptu allir okkar bestu hópfimleikamenn. Keppt var í þremur flokkum hjá konunum meistaraflokki, fyrsta flokki og öðrum flokki en hjá körlunum var aðeins eitt lið og kepptu þeir í meistarflokki.
Keppnin var jöfn og spennandi í meistaraflokki kvenna en þar kepptu fjögur lið í heildina. Hið sigursæla lið Gerplu náði að tryggja sér sigurinn með samanlagt 48,533 stig, Stjarnan kom á eftir þeim með 45,900 stig, Selfoss lenti í þriðja sæti með 43,467 stig og Keflavík rak lestina með 39,433 stig.